Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. mars 2021

Nýtt viðmiðunarverð 2. mars 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. mars 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur lækkar um 5,0%
  • Óslægður þorskur lækkar um 12,1%
  • Slægð ýsa lækkar um 2,0%
  • Óslægð ýsa lækkar um 1,4%
  • Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur
  • Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. mars 2021.

Allar verðtöflur

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.