Fara í efni

Viðmiðunarverð í gildi frá 2. desember 2022

Viðmiðunarverð í gildi frá 2. desember 2022

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. desember 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur helst óbreyttur
Óslægður þorskur helst óbreyttur
Slægð ýsa helst óbreytt
Óslægð ýsa lækkar um -5,0%
Karfi hækkar um 2,0%
Ufsi hækkar um 1,0%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. desember 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Sækja allar verðtöflur