Fara í efni

Viðmiðunarverð í gildi frá 3. janúar 2023

Viðmiðunarverð í gildi frá 3. janúar 2023

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. janúar 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 4,2%
Óslægður þorskur hækkar um 4,2%
Slægð ýsa lækkar um -8,0%
Óslægð ýsa lækkar um -6,6%
Ufsi hækkar um 4,5%
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. janúar 2023. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Sækja allar verðtöflur