Viðmiðunarverð í gildi frá 3. júní 2025
03. jún 2025
Viðmiðunarverð í gildi frá 3. júní 2025
Samkvæmt ákvörðun hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS) frá 3. júní 2025, breytist viðmiðunarverð samkvæmt kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Ufsi hækkar um 1,7%
Þorskur, ýsa og karfi haldast óbreytt frá 5. maí 2025.
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. júní 2025.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.