Fara í efni

Viðmiðunarverð í gildi frá 3. nóvember 2022

Viðmiðunarverð í gildi frá 3. nóvember 2022

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. nóvember 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 3,5%
Óslægður þorskur hækkar um 3,5%
Slægð ýsa lækkar um -3,5%
Óslægð ýsa lækkar um -7,0%
Karfi hækkar um 3,0%
Ufsi breytist ekki

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. nóvember 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.
Sækja allar verðtöflur