Fara í efni

Viðmiðunarverð í gildi frá 3. október 2023

Viðmiðunarverð í gildi frá 3. október 2023

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. október 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur helst óbreyttur
Óslægður þorskur helst óbreyttur
Slægð ýsa lækkar um 5,0%
Óslægð ýsa lækkar um 10,0%
Ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. október 2023. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Sækja allar verðtöflur