Viðmiðunarverð í gildi frá 4. febrúar 2026
Viðmiðunarverð í gildi frá 4. febrúar 2026
Samkvæmt ákvörðun hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS) frá 4. febrúar 2026, breytist viðmiðunarverð samkvæmt kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Óslægður þorskur helst óbreyttur
Slægð ýsa hækkar um 5,0%
Óslægð ýsa helst óbreytt
Ufsi hækkar um 2,2%
Karfi helst óbreyttur
Að auki var gerð breyting á verðkúrfu slægðs þorsks, þ.e. viðmiðunarverð á slægðum þorski breytist mismikið eftir stærð í 5 þrepum að 8,5 kg. Hækkun var áður tvískipt að 5,5 kg.
Grunnverð slægðs þorsks var 304,36 kr/kg en hækkar um 5% og er nú 319,58 kr/kg.
Hér meðfylgjandi er mynd af nýrri verðkúrfu á slægðum þorski (dökkblá lína) ásamt gömlu verðkúrfunni (ljósblá lína).

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. febrúar 2026.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.