Fara í efni

Viðmiðunarverð í gildi frá 4. júlí 2023

Viðmiðunarverð í gildi frá 4. júlí 2023

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. júlí 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur lækkar um 1,9%
Óslægður þorskur lækkar um 1,9%
Slægð ýsa lækkar um 5,7%
Óslægð ýsa helst óbreytt
Ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. júlí 2023. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Sækja allar verðtöflur