Viðmiðunarverð í gildi frá 4. maí 2022
		
				04. maí 2022	
	
		
			
				
		
		
	
	Viðmiðunarverð í gildi frá 4. maí 2022
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. maí 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur breytist ekki 
Óslægður þorskur breytist ekki 
Slægð ýsa lækkar um 5,8% 
Óslægð ýsa hækkar um 5,3% 
Karfi breytist ekki 
Ufsi hækkar um 5,7%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. maí 2022. 
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.
Sækja allar verðtöflur