Viðmiðunarverð í gildi frá 6. janúar 2026
06. jan 2026
Viðmiðunarverð í gildi frá 6. janúar 2026
Samkvæmt ákvörðun hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), frá 6. janúar 2026, breytist viðmiðunarverð samkvæmt kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur 2,0%
Óslægður þorskur 1,0%
Slægð ýsa 8,0%
Óslægð ýsa 8,0%
Ufsi 3,0%
Karfi 0,0%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. janúar 2026.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.