Fara í efni

Viðmiðunarverð í gildi frá 6. september 2022

Viðmiðunarverð í gildi frá 6. september 2022

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. september 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 2,6%
Óslægður þorskur hækkar um 3,0%
Slægð ýsa hækkar um 3,2%
Óslægð ýsa hækkar um 3,2%
Karfi breytist ekki
Ufsi breytist ekki

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. september 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998. Sækja allar verðtöflur